Jæja...heldur langt síðan ég bloggaði síðast...en sem afsökun hef ég að við vorum náttúrulega á Íslandi slatta af tímanum.
En allavega...á maður að fara yfir hvað hefur gerst frá síðasta bloggi? Já, held það bara.
Ég bloggaði síðast í nóvember, þá vorum við með innflutningspartý og fjör. Svo snjóaði smá, sem þótti nógu merkilegt til að festa það á filmu.


En svo í lok nóvember komu mamma og pabbi í heimsókn og þá var ennþá meira flör

Gömlu flugu að sjálfsögðu til Köben og tóku lestina hingað. Við röltum útá lestarstöð og fundum þau loksins eftir að pabbi reyndi að útskýra fyrir okkur hvar þau væru með því að segja "það er svona torg með full af hljólum beint fyrir framan okkur" ...jájá það eru svona 100 staðir sem það á við um í Lundi. En við fundum þau nú samt...aðallega af því að við erum svo hrikalega klár

Daginn eftir, sem var sunnudagur, fórum við í smá útsýnisrölt um Lund og kíktum á jólastemminguna. Við sáum meðal annars jólauppboð lions manna, sem voru hrikalega smart í gulum samfestingum

Á mánudeginum skruppum við í Nova Lund (verslunarmiðstöð), en þar gátu óskar og pabbi dunað sér við að þrífa skóna sína meðan við mamma kítum í búðir

Á þriðjudeginum fórum við svo öll yfir til Köben. Við ætluðum svo bara að koma aftur til Svíþjóðar um kvöldið en mamma og pabbi ætluðu að vera í Köben fram á fimmtudag. Verkaskipting ferðarinn var mjög einföld hjá gömlu, mamma sá um sænska peninga og pabbi sá um danska peninga. Mamma var búin að standa sig mjög vel með sænsku peningana það sem af var ferðinni, en pabbi var ennþá í smá sjokki eftir að hann borgaði morð fjár fyir pylsu og bjór á Kastrup. En allavega, við mætum til köben, finnum hótelið þeirra og erum alveg að koma að hurðinni þegar pabbi stoppar allt í einu. Leitar í öllum vösum og töskum, og segir svo "vitiði hvar veskið mitt er?...það er í Svíþjóð!" Þetta leystist með því að mamma notaði vísa sem tryggingu fyrir hótelherberginu og sipti sænsku peningunum sínum í danska...það var nebblega ekkert hægt að skipta íslenskum peningum þar sem þeir voru enn núll króna virði samkvæmt skiptibúllunum á strikinu. Eftir að þessu hafði verið reddað röltum við um kaupmanahöfn og tékkuðum á jólastemmingunni þar...ég gleymdi myndavélinni heima og allar myndir voru því teknar á símann hans Óskars. Sá sími fór hinsvegar í verkfall um jólin og var því skilinn eftir á íslandi þannig að ég á engar myndir frá Köben í bili...set þær inn seinna

Til að geta séð fyrir sér restina af tímanum í Köben þá komu mamma og pabbi með okkur aftur til Svíþjóðar, náðu í veskið og fóru svo aftur til Köben...tveimur dðgum seinna komu þau aftur til Svóþjóðar, oooooog tveimur dögum eftir það fóru þau aftur til Köben og þaðan heim. Síðustu tvo dagana í Svíþjóð fórum við annan daginn til Malmö og hinn daginn bara röltum við um og skoðuðum jólastemmingu í Lundi.
Óskar fór hem daginn áður en pabbi og mamma fóru heim...nú og svo fóru þau heim, þannig að þá var ég ein eftir í Svíþjóð í heila 11 daga. Ég gerði nú voðalega fátt merkilegt á þeim tíma nema læra fyrir eitt próf, fara í prófið og svo klára að kaupa jólagjafir.
Ég kom svo loksins til Íslands 18. desember

Ferðin gekk vel fyrir utan að taskan mín var svo hrikalega þung að ég mætti alveg bullandi sveitt á lestarstöðina eftir að hafa dregið töskuna yfir hálfan Lund...missti ef lestinni sem ég ætlaði að taka af því að það tók lengri tíma en ég hélt að draga svona þunga tösku og svo þegar ég kom á Kastrup hélt taskan áfram að vera með leiðindi og ég endai með yfirvikt. það vildi hinsvegar svo heppilega til að ég þekkti íslendinga í röðinni og þau buðust til að tékka sig inn með mér þannig að yfirviktin mín dreifðist á þau og ég slapp við að borga

Taaaaaakk Bóas og félagar

Ég komst svo á endanum alla leið til Grindavíkur og fékk einkatónleika hjá Óskari og bræðrum hans
Óskar og Brynjar

Óskar og Jóhann

Ég var svo fyrir sunnan í tvo daga og fór norður 20. desember

Það var að sjálfsögu yndislegt heima um jólin og áramótin voru ekkert síðri. Þegar ég kom norður var fullkominn jólasnjór...en hann fór akkúrat tímalega til að það væri enginn snjór klukkan 18 á aðfangadag! Smááá svekkelsi með það, en ég náði allavega myndum af jólasnjónum


22. desember komu barnabörnin í smá jólaföndur. Pabbi fékk þjálfun í snjókarlagerð hér í Svíþjóð og miðlaði af visku sinni til barnabarnanna.
Sólrún Svava vandar sig við að mála.

Sunneva vandar sig við að mála.

Og Ágúst Óli vandaði sig líklega mest við að mála

Helga Björg að skoða jólaskraut...hún var ekki með í að föndra en ég ákvað að skella inn mynd af henni samt


Svo komu áramótin og allur hópurinn var heima í Græna húsinu

Sunneva

Pabbi tekur því mjög alvarlega sem sagt er í áramótasöngvum, "bleikar lýsum grund" segir í laginu...og það gerði hann

Barnabörnin fengu að vera með í bleiku stemmingunni undir stjórn Kjartans

Ég fór svo suður á þrettándanum og við fórum aftur til Svíþjóðar 10. janúar. Ásta vinkona vann tveir fyrir einn í brúnkusprey þarna í janúar og vantaði einhvern til að koma með sér til að hún gæti nú nýtt þetta tilboð. Þannig að ég sló til...hafði aldrei prófað áður og reyndar ekki Ásta heldur. En árangurinn af þessu má sjá á næstu mynd

Svo leiddist okkr smá í flugvélinni þannig að við tókum smá myndaflipp


Síðan við komum til Svíþjóðar erum við nú aðallega búin að vera að læra. Óskar byrjaði í fjarnámi í tölvunarfræði í HR og ég er að taka sálfræði áfanga. Helstu fréttir þar fyrir utan er að það er búið að selja íbúðina okkar þannig að við erum að vinna í íbúðamálum núna og sjáum til hvað gerist í framhaldinu...rosa spennó
Já, ég held að þetta sé orðið fínt í bili. Blogga meira fljótlega og vonandi verður þá komið á hreynt hvort við fáum íbúð eða hvað
Veriði góð og munið að vorið nálgast